![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
Tölvur og hugbúnaður
Frjálst "UniX" fjölnotenda stýrikerfi fyrir pésa og makka með X-gluggakerfi. Frábært framtak sem hefur sannað gildi sitt.
- LINUX er notað á allt frá ofurtölvum til snjallsíma. Langflestar ofurtölvur veraldar nota LinuX. Kerfið er netlægt. Samskiptastaðlar eru hannaðir inn í grunn þess þannig að skrákerfi og grafísk vinnsla eru ekki bundin við eina vél. Athugið örugg dulkóðuð samskipti með "ssh", "scp", "rsync" og "fish" í Konqueror.
LinuX er þróað opið af áhugamönnum og fyrirtækjum um víða veröld. Til eru margar LinuX-dreifingar eins og Slacware, Debian, Ubuntu, Mint, OpenSuSE, Redhat, Arch Linux og fjölmargar aðrar. Þessi fjölbreytni hefur leitt til mikilla framfara með öflugri samkeppni um sniðugar og hentugar lausnir fyrir mismunandi þarfir notenda.
- KDE, Taktu völdin á skjáborðinu!
Ég er alinn upp við skipanalínu og minimalisma, en leyfi mér allan grafískan munað sem KDE býður uppá. "Kontact" með "imap" er frábær fyrir póstinn og dagatalið. "Konqueror" er vafri og skráaumsjónarkerfi sem leyfir grafíska vinnslu með þjöppuð og/eða dulkóðuð skráasöfn. UTF-8 stafataflan sem KDE styður býður upp á skjöl með öllum stafrófum og táknkerfum jarðarinnar.
- Maxima: Frjálst (GPL) algebruforrit fyrir öll stýrikerfi. Maxima er byggt á Macsyma sem smíðað var í MIT upp úr miðjum 7. áratug síðustu aldar. Maxima er í örri þróun um þessar mundir og er orðið þægilegt í notkun. Athugið sérstaklega Xmaxima grafíska yfirborðið, eða Maxima "setu" (e. session) í TeXmacs (WYSIWYG-ritill fyrir LaTeX).
Ég kann líka mjög vel við wxMaxima grafíska yfirborðið á Maxima. Í því eru flestar skipanir Maxima geranlegar með því að fylla út reiti, og þá þarf minna að muna um "málfræðina".
- Gnuplot: Frjálst grafík-forrit fyrir öll stýrikerfi. Með Gnuplot er einfalt að útbúa birtingarhæf gröf í tveimur eða þremur víddum.
Sumir vinir minna eru hrifnari af QtiPlot.
- Xfig er gott frjást teikniforrit fyrir X-gluggakerfi Linux og Unix tölva.
- Convert-skipunin úr ImageMagick leyfir hamskipti grafík-skrá milli allra staðlaðra hama, jpg, eps, png, ps, pdf, gif,....
- Gimp er frjást öflugt myndvinnsluforrit fyrir öll stýrikerfi.
- TeX: Auðvitað notum við LaTeX eða pdfLaTeX fyrir alla textavinnslu. TeX og LaTeX eru frjáls setningaforrit fyrir texta fyrir öll stýrikerfi. Forritin fylgja öllum Linux-dreifingum. ÍsTeX: Er vefsíða íslensks TeX-notendahóps.
Lengi vel var ég ánægður með að nota ritil eins og Emacs eða kate úr KDE ásamt skipanalínu, en kile er þægileg grafísk skel fyrir LaTeX-vinnslu sem ég nota æ oftar. Sumir yngri vina minna vilja ekkert nema fullkomið WYSIWYG grafískt kerfi ofan á LaTeX, eins og Lyx eða TeXmacs.
- Með LaTeX-inu nota ég alltaf BiBTeX til þess að sjá um tilvitnanir. Til er grafískt forrit "bibview" til þess að bæta við tilvitnunum í BiBTeX-gagnabankann, en miklu öflugra er Java-forritið JabRef til þess. Það gengur á öll stýrikerfi og býður ýmsa skemmtilega möguleika við vinnu með tilvitnanabankann. Mörg tímarit um eðlis- og stærðfræði bjóða tilvitnanir tilbúnar beint í BiBTeX.
- Octave er frjálst öflugt forrit til tölulegra reikninga og líkist mjög MatLab.
Enn öflugra er væntanlega SciLab.
Ég hef enga reynslu af FreeMat, en það lítur vel út.
- Ekkert forrit býður þó upp á jafn hraða tölulega reikninga og Intel® Composer XE (FORTRAN-2008) frá Intel. Það er til án greiðslu fyrir einkaafnot á Linux í 32- og 64-bita útgáfum auk mkl (Math Kermel Library) undirstefjum sem eru tilbúin fyrir samhliða keyrslur.
x86 Open64 Compiler Suite er opinn FORTRAN þýðandi studdur af AMD í harðri samkeppni. Þar má finna ACML undirstefjusafnið. Þessi tvö undirstefjusöfn nota OpenMP fyrir fjölþráðavinnslu.
Opna þýðendur fyrir C, C++ og FORTRAN má einnig nálgast hjá GCC, the GNU Compiler Collection.
Vel uppsett Linux-dreifing fyrir þá sem ekki eru innvígðir í kerfisstjórn. Handhæg grafísk stjórnunartól. Ef þið notið OpenSuSE þá eru mikilvægar upplýsingar hjá openSUSE-Community.org um ýmsar aukastillingar. Tumbleweed er stiglaus uppfærsla fyrir OpenSuSE.
- openSUSE-Community.org is a project aiming to channel more of a community effort into our favourite distribution, openSUSE. This includes -- but is not exclusive to -- adding all the extra documentation that is required for a seamless openSUSE experience.
- Aurora er góð Linux-dreifing fyrir EeePC, netbækur og svipaðar smávélar. Kjarnin er sérhæfður fyrir vélbúnaðinn. Aurora býður upp á öll forrit sem nota má á venjulegar vélar. Ég hef sannreynt að 2.5W Intel-N270 getur keyrt tvo samhliða þræði. Aurora er miklu þjálla og notendavænna en linux-kerfið sem oft fylgir þessum vélum. Ég er líka mjög ánægður með openSuSE á slíka vél.
Frjáls vefnámskeið um vefinn:- W3Schools.
- Ég kann lítið um vefforritun, en læt Quanta Plus vefþróunarkerfið létta mér öll störf þar.
Frjáls skrifstofuvöndull fyrir allar tölvugerðir og stýrikerfi- OpenOffice. Hví að ánetjast "örlinu hugbúnaðareinveldi" fyrir stórfé? Eftir að Oracle keypti Sun hafa allar stóru Linux dreifingarnar fært sig yfir til LibreOffice
.
Er ekki rétt að loka umslaginu á tölvupóstinum stundum? Til er frjálst dulkóðunarforrit fyrir flest stýrikerfi og póstforrit, The GNU Privacy Guard:- GnuPG.
Safn öflugs hugbúnaðar fyrir LinuX, t.d. DVD-spilarar sem spila öll svæði og annað góðmeti:- Links2LinuX.de
- Ég vil hafa öll kennslugögn opin fyrir allri veröldinni. Eins vil ég leyfa mér meira magn á vefnum en gjaldskrá Reiknistofnunar auðveldar, og ég vil læra af netnotkun nemenda. Því keyri ég allar síður nema efsta lagið af eigin tölvum sem nota Apache vefþjóninn, og fylgist með umferðinni á nokkrar síður með BBClone greininum.
Nokkrum sinnum hef ég kennt ásamt öðrum námskeiðið Tölvueðlisfræði. Við söfnuðum saman ýmsum tengjum á efni sem nýtist við líkanareikninga:- Tölvueðlisfræði.